18. apríl 2011 klukkan 10:54
Við fórum að sjá sýninguna um Tryggva Þorsteinsson. Hrefna og Guðný úr Kvisti komu og sögðu okkur frá mununum á sýningunni og frá Tryggva sjálfum. Þetta var mjög skemmtilegt og fróðlegt.
Mætt: Kári, Unnar, Freyja, Rannveig, Emma, Aron, Halldór.
Dísa, Lilja og Bryndís
01. mars 2011 klukkan 23:47
Eins og skáta er siður er haldið upp á afmæli stofnanda skátahreyfingarinnar, Lord Baden Powell á afmælisdag hans, 22.febrúar. Að þessu sinni var kvöldvakan haldin í Giljaskóla. 8 skátar mættu frá okkur og það dugði til að gera skemmtiatriðið okkar gott.
Mætt: Hjalti, Unnar, Halldór, Hekla, Svava, Álfheiður, Karen, Emma (8)
Dísa, Lilja og Bryndís
01. mars 2011 klukkan 23:37
18 glaðir skátar mættir. Gekk alveg vonum framar. Það sem einkenndi útileguna var útivera. Enda er frábær brekka beint við hliðina á skálanum. Við höfðum spilakvöld og bjuggum til skemmtiatriði: mannætusvefnpokarnir! Skátar leggja áherslu á samvinnu og þessi útilega var ekkert öðruvísi. Allir hjálpuðust að, bæði við matseld og frágang. Eins og skáta er von og vísa fór enginn svangur heim.
Mætt: Harpa, Marisol, Rannveig, Svava, Karen, Hjalti, Hlynur, Unnar, Jörundur, Aron, Halldór, Dagrún, Jana, Álfheiður, Adam, Sandra (18)
Dísa, Lilja og Bryndís
01. mars 2011 klukkan 23:16
Aðeins tæpt á skemmtiatriði fyrir kvöldvöku 22.feb, en ekkert gekk. Drifum okkur bara út í góða veðrið.
Mætt: Freyja, Harpa, Jana, Sandra, Hekla, Álfheiður, Rannveig, Emma, Dagrún, Svava, Lovísa, Marisól, Unnar, Hlynur, Aron, Adam, Kári, Roman, Hjalti, Halldór
Dísa, Lilja og Bryndís
01. mars 2011 klukkan 23:13
12 skátar mættu sem þýðir að við fengum MÆTINGAVERÐLAUNIN :)
Keppt var í boðsundi og allskonar skrípasundi. Eðlilega var keppnum skipt eftir styrkleika sveita. Við fengum líka lengri frjálsan tíma en hinir.
Mætt:
Dísa, Lilja og Bryndís
01. mars 2011 klukkan 23:05
Fengum Steina Pé í heimsókn til að fræða okkur um Lord Baden Powell. Sungum nokkur lög og töluðum aðeins um komandi kvöldvöku og skemmtiatriði.
Mætt: Unnar, Rannveig, Emma, Svava, Dagrún, Jana, Hjalti, Roman, Karen, Hekla, Hlynur, Halldór, Ingibjörg, Jörundur, Aron, Harpa. (16)
Dísa, Lilja og Bryndís
01. mars 2011 klukkan 21:27
Hrefna úr Kvisti ásamt Höllu aðstoðarkonu hennar, komu á sérstakan söngfund með okkur. Hrefna og Halla voru að hjálpa okkur að læra fleiri lög eftir Tryggva Þorsteinsson, í tilefni af 100 ára afmæli hans. Fórum líka í pínu leiki.
Mætt: Jörundur, Halldór, Aron, Jóhann, Freyja, Dagrún, Unnar, Rannveig, Emma, Hjalti, Jana, Álfheiður, Roman, Hekla. (14)
Dísa, Lilja og Bryndís
01. mars 2011 klukkan 21:22
Dulmálsleikur. Skiptum í 4 hópa sem hlupu á milli og leystu dulmálsþrautir. Eyddum svo síðustu mínútunum úti, þar sem sumir voru orðnir pínu þreyttir.
Mætt: Halldór, Hlynur, Jóhann, Ingibjörg, Álfheiður, Jörundur, Ída, Emma, Jana, Karen, Kári, Hjalti, harpa, Atli, Roman, Rannveig, Hekla, Freyja, Svava, Aron. (20)
Dísa, Lilja og Bryndís
01. mars 2011 klukkan 21:17
Rifjuðum upp allt það sem við eigum að kunna. Fórum lauslega í gegnum nýju starfsáætlunina. Sungum nokkur lög. Fórum í leikinn: Hver er undir teppinu?
Mætt: Selma, Freyja, Unnar, Hekla, Jana, Álfheiður, Roman, Ingibjörg, Harpa, Hjalti, Atli, Jörundur, Karen, Halldór, Rannveig, Emma, Sandra, Svava (18)
Dísa, Lilja og Bryndís
01. mars 2011 klukkan 21:12
Síðasti fundur ársins. Allir mættu með jólasmákökur og fengu svo heitt kakó með. Sungum jólalög og hlustuðum á Hurðaskelli og Stúf.
Mætt: Hekla, Karen, Álfheiður, Jana, Roman, Freyja, Hjalti, Unnar, Selma, Jörundur, Emelía, Dagrún, Kári, Aron, Hlynur, Emma, Svava, Rannveig, Sandra, Adam (18)
Dísa, Lilja og Bryndís